Ævintýrahöllin Barnamenningarhátíð Blaðrarinn Gerðubergi Borgarbókasafn
Blaðrarinn kemur í heimsókn í Ævintýrahöllina

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 14:45
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
7-12 ára
Tungumál
Íslenska
Börn

Ævintýrahöllin I Blaðrarinn kemur í heimsókn

Sunnudagur 26. apríl 2026

Blaðrarinn kemur í Ævintýrahöllina!

Farið verður yfir hverning á að gera þrjú blöðrudýr á skemmtilegan og einfaldan hátt og endum á blöðruhattabrjálæði þar sem þau gera eins rosalega hatta og þau geta eða láta ímyndunaraflið ráða hvað þau gera á meðan þau fá hjálp frá reyndum blöðrulistamönnum. Hvert barn má taka blöðrurnar heim með sér sem endast í daga eða jafnvel vikur.

Tvær smiðjur í boði. Kl 13 og kl 14

Hentar vel fyrir 7-12 ára, líka yngri en þau þurfa yfirleitt hjálp frá foreldrum.

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.

Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s. 868 1851