
Um þennan viðburð
Tími
16:30 - 18:00
Verð
Frítt
Bókasafn
Tungumál
íslenska, enska, danska
Börn
Barnamenningarhátíð I Skapandi skósmiðja
Mánudagur 20. apríl 2026
Í tilefni af Barnamenningarhátíð í Reykjavík er börnum og fjölskyldum boðið í litríka og skemmtilega smiðju þar sem ímyndunaraflið ræður ferðinni.
Taktu með þér gamlan skó og breyttu honum í skemmtilegt skólistaverk. Skórinn þinn sýnir eitthvað um þig, áhugamál og drauma - og sporin sem þig langar að skilja eftir. Það verður allskonar skraut á staðnum en þú getur líka komið með þitt eigið.
Smiðjan er hluti af Nordplus-verkefninu SPIN. Smiðjustýrur eru Kristín Vilhjálmsdóttir verkefnastjóri og menningarmiðlari og Marie Ravn, Sara Petrat-Melin og Susanne Gilling úr barnamenningarteymi bókasafnsins Dokk1 í Árósum.
Sýningin er hluti af Barnamenningarhátíð
Viðburðurinn á facebook
Umsjón og nánari upplýsingar:
Kristín Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri
kristinvil@gmail.com