
Æsispennandi saga um magnaða markverði, volduga varnarnagla, klóka kantmenn, fljóta framherja og makalaus mörk... en líka ýmislegt annað eins og skapstyggan skipstjóra, ljúgandi lögreglumann, eldspúandi fjöll og enn alvarlegri vandamál sem þarf að glíma við jafnvel þótt fótboltamót sé í gangi. Gunnar Helgason er vel þekktur af ýmiss konar skemmtiefni fyrir börn sem notið hefur mikilla vinsælda. Þetta er fimmta bók hans og klárlega sú besta til þessa. (Heimild: Bókatíðindi)