
Engin bók hefur vakið jafn verðskuldaða athygli á undanförnum árum og Mátturinn í Núinu eða farið aðra eins sigurför um heiminn. Höfundurinn varð á ungum aldri fyrir máttugri reynslu sem kippti honum ekki aðeins út úr langvarandi kvíða og þunglyndi heldur inn í þann frið sem ekki hefur yfirgefið hann síðan. Þeirri reynslu miðlar hann á áhrifamikinn hátt í þessari bók sem hefur breytt lífi fjölda fólks. (Heimild: Bókatíðindi)


