![Uppskera - Menningarhátíð fatlaðra 8. febrúar - 8. mars 2025 Uppskera - Menningarhátíð fatlaðra 2025](https://borgarbokasafn.is/sites/default/files/styles/ding_secondary_large/public/title_image/news/uppskeru-_og_menningarhatid_fatladra_2025.jpg?itok=AzKRq__v)
Uppskera - menningarhátíð fatlaðra | Fjölbreyttur bókakostur og viðburðir
Tilefni hátíðarinnar Uppskeru er 20 ára afmæli fötlunarfræða við Háskóla Íslands. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á framlagi fræðafólks, samtaka fatlaðs fólks og fatlaðs listafólks til íslenskrar menningar.
Við vekjum athygli á úrvali bóka af ýmsu tagi sem snerta eða fjalla um fötlun á einhvern hátt og hægt er að fá að láni hjá Borgarbókasafninu. Sérstakar útstillingar verða á söfnunum okkar og hér fyrir neðan má sjá brot af því sem í boði er.
Viðburðir sem í boði eru á Borgarbókasafninu í tilefni hátíðarinnar:
Sýning | Sögur
Borgarbókasafnið Gerðubergi
8. febrúar – 8. mars
Sýning | Gleðin að gera og vera
Borgarbókasafnið Spönginni
12. febrúar - 1. mars
Fræðakaffi | Auðlesið mál
Borgarbókasafnið Spönginni
17. febrúar kl. 16:30 – 17:30
Lykilviðburðir hátíðarinnar verða tveir, málþing í Háskóla Íslands 21. febrúar og menningarhátíð í Hörpu 22. febrúar. Auk þess verða viðburðir víðs vegar um borgina þar sem gestum gefst tækifæri á að njóta listsköpunar fatlaðs fólks. Í boði verður myndlistasýning, kvikmyndasýning, bókmenntakvöld, gjörningakvöld, ljóðakvöld, smiðjur auk viðburða á söfnum borgarinnar.
Dagskráin verður aðgengileg á auðlesnu máli og allir viðburðir táknmálstúlkaðir. Í Hörpu verður rittúlkun á ensku og sjónlýsing á íslensku og ensku. Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu.
Verið öll velkomin á Uppskeru!
Nánari upplýsingar veita:
Margrét M. Norðdahl, listrænn stjórnandi
mnorddahl@gmail.com
Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115