Jólatónleikar Tónskóla Reykjavíkur
Jólatónleikar Tónskóla Reykjavíkur

Um þennan viðburð

Tími
11:30 - 15:30
Verð
Frítt
Tungumál
íslenska
Tónlist

Tónleikar | Hátíð handa þér

Laugardagur 7. desember 2024

Tónskólinn í Reykjavík býður á hvorki meira né minna en ÞRENNA hátíðartónleika á Borgarbókasafninu í Spönginni. Þeir fyrstu hefjast kl.11:30, næstu kl.13:00 og þeir síðustu kl.14:30.

Nemendur leika verk sem þau hafa undirbúið á liðinni önn. Eftir tónleika er boðið upp á piparkökur, heitt kakó og kaffi.

Öll velkomin. Tilvalið er að sækja sér í leiðinni lesefni fyrir jólin!