Smásmiðjur í Grófinni

Reglulega eru haldnar spennandi Smásmiðjur í tónlistar -og myndvinnsluverinu á 5. hæð í Grófinni.  Smiðjurnar eru hugsaðar fyrir byrjendur og þau sem langar að rifja upp ýmislegt tengt  mynd-, tónlistar- eða hljóðvinnslu. 

Í hverri smiðju er farið yfir ákveðin tækniatriði eða forrit, til dæmis hvernig klippa á saman myndband í Final Cut Pro, semja takt í Logic Pro og hanna skemmtilega hluti fyrir þrívíddarprentara í teikniforritinu Tinkercad.

Smásmiðjurnar eru á boði annan hvern mánudag frá kl. 16:30 - 17:30. Eftir tímann er starfsfólk á staðnum til að aðstoða til kl. 18:00.

Þátttaka er ókeypis og engin skráning. Smiðjurnar eru opnar öllum 13 ára og eldri. 
 

Smásmiðjur haustið 2024:

16. september | „Núritun“ - Forritum tónlist í Strudel
30. september | Klippum saman vídeó í Final Cut Pro
14. október | Hönnum hrollvekjandi hljóð fyrir vídeó í Final Cut Pro
28. október |  Hönnum spennandi hluti fyrir þrívíddarprentara í teikniforritinu Tinkercad
11. nóvember | Búum til takt í Logic Pro tónlistarforritinu
25. nóvember | Lærum að nota grænskjá í Final Cut Pro forritinu


Nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Gestsson, sérfræðingur tónlistardeildar
valgeir.gestsson@reykjavik.is | 411 6100