Um þennan viðburð

Tími
13:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Íslenska
Börn

Ævintýrahöllin | Leirum saman Stafakarla

Sunnudagur 26. apríl 2026

Boðið verður upp á að leira sinn eigin stafakarl í Gerðubergi. Hægt er að mæta með fjölskyldu og vinum og deila saman skapandi gæðastund í leik með stafrófið. Þú færð að eiga stafakarlinn sem þú leirar og taka hann með þér heim. Skapandi og skemmtilegri stund. Bergljót Arnalds, höfundur bókarinnar Stafakarlarnir, verður á staðnum. Hlökkum til að sjá ykkur!

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is |  868 1851