BMX BRÓS
BMX BRÓS

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
öll tungumál velkomin
Börn
Ungmenni

Ævintýrahöllin | BMX BRÓS

Laugardagur 25. apríl 2026

BMX BRÓS mæta með stuðið og leika listir sínar á Barnamenningarhátíð í Reykjavík! Sýningin er orkumikil og spennandi upplifun þar sem adrenalínið flæðir og orkan er í hámarki. Áhorfendur eru stór partur af upplifuninni og númer eitt hjá strákunum er að allir fari brosandi heim. Í lok sýningar verður boðið upp létta þrautabraut og fá áhorfendur þá tækifæri til að spreyta sig á hjólunum. Ekki láta þig vanta í stuðið!

Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur  ókeypis. 

Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is |  868 1851