
Um þennan viðburð
Ævintýrahöllin | Klippimyndasmiðja með Linn Janssen
Verið velkomin í skapandi klippismiðju þar sem við teiknum og endurnýtum tímarit og afskrifaðar barnabækur til að skapa listaverk sem hægt er að taka með heim. Myndhöfundurinn Linn Janssen mun leiða smiðjuna. Linn útskrifaðist af teiknibraut Myndlistaskólans í Reykjavík 2022 og er myndhöfundur bókanna Einstakt Jólatré og Árstíðarverur. Verk hennar einkennast af blöndu af klippimyndatækni, trélitateikningu og gvass málun. Tilvalin samverustund fyrir alla fjölskylduna. Allur efniviður er á staðnum og þátttaka er ókeypis.
Ævintýrahöll Barnamenningarhátíðar hefur í gegnum tíðina flakkað á milli hverfa borgarinnar og árið 2026 mun hún fara fram í Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti. Þar verður sannkallað líf og fjör og er aðgangur ókeypis.
Á vef Barnamenningarhátiðar er að finna heildardagskrá hátíðarinnar sem verður um alla borg.
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s. 868 1851