
Um þennan viðburð
Dægurflugur í hádeginu I Óður til kvenna
Borgarbókasafnið Gerðubergi, föstudaginn 14. mars kl. 12:15-13:00
Borgarbókasafnið Spönginni, laugardaginn 15. mars kl. 13:15-14:00
Helga Margrét Clarke söngkona, Jón Ingimundarson píanóleikari og Leifur Gunnarsson kontrabassaleikari flytja tónlist um konur og eftir konur í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars.
Þá er þess minnst víðs vegar um heim hvert mannkynið er komið í kynjajafnréttismálum, einkum kvenréttindum.
Helga Margrét Clarke, söngkona og lagahöfundur, er þekkt fyrir að flétta saman áhrifum frá klassískri og rytmískri tónlist á einstakan hátt. Flutningur hennar einkennist af djúpri túlkun sem heillar áheyrendur og skapar sterka tengingu við textann og tónlistina.
Dægurflugur í hádeginu er tónleikaröð sem Borgarbókasafnið stendur fyrir í samstarfi við Leif Gunnarsson kontrabassaleikara sem er jafnframt listrænn stjórnandi. Þar kemur fram margt af okkar helsta tónlistarfólki og á tónleikunum gefst Reykvíkingum tækifæri til að koma saman, hitta félaga, njóta tónlistar og spjalla við tónlistarfólkið eftir tónleika.
Markmiðið er fyrst og fremst að færa metnaðarfulla tónlist út í hverfi borgarinnar þannig að fólk geti notið hennar í eigin nærumhverfi og á eigin forsendum.
Frítt er inn á tónleikana og eru öll hjartanlega velkomin.
Nánar um Leif: lgtonar.com
Nánari upplýsingar veita:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is I 868 1851
Leifur Gunnarsson, listrænn stjórnandi
leifurgunnarsson@gmail.com | 868 9048