Míkrafónn í forgrunni. lhjóðfæri og jólaskreytingar í bakgrunni

Samkeppni | Jólalag Borgarbókasafnsins 2024

Jólin 2022 efndi Borgarbókasafnið til jólalagakeppni í fyrsta sinn. Þar sem vel til tókst var ákveðið að gera jólalagakeppnina að árlegum viðburði þar sem öll geta tekið þátt. Nú er komið að því að halda keppnina í þriðja sinn. 

Óskað er eftir frumsömdum, áður óútgefnum lögum á stafrænu formi. Lögin þurfa að vera á íslensku en geta verið með eða án texta. Æskileg lagalengd er um það bil þrjár mínútur. 

Við hvetjum öll sem langar að taka þátt til þess að bóka tíma í hljóðverinu okkar hér. Athugið að það er EKKI nauðsynlegt að taka upp í hljóðverinu okkar til þess að taka þátt. 

Sem stendur er hægt að bóka tíma í hljóðverinu á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum milli klukkan 15-17 og 17-19. Okkar dyggi hljóðmaður, Haraldur Ernir, er til staðar, ykkur til halds og trausts. Einnig er hægt að bóka rýmið til æfinga á fimmtudögum og föstudögum hér milli 15-18. 

Lokafrestur til að senda inn lag er sunnudaginn 1. desember kl. 23:59. 

Lög sendist í gegnum skráningarform á vefsíðu Borgarbókasafnsins. 

Dómnefnd

 Sigríður Stephensen, Hildur Kristín Stefánsdóttir og Andrés Þór Þorvarðarson

Lögin verða lögð fyrir dómnefnd en í henni eru þrír vel valdir góðkunningjar bókasafnsins.  

Fyrst ber að nefna Andrés Þór Þorvarðarson sem vinnur sem húsvöður á Borgarbókasafninu í Grófinni. Hann lauk BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2019 og hefur verið í hljómsveitum á borð við Milkhouse og spilað með tónlistarkonunni K.óla. Hann veit fátt betra en frábært lag. 

Svo er það Sigríður Stephensen, sérfræðingur á Borgarbókasafninu í Spönginni en hún er áhugamanneskja um allskonar tónlist. Hún lærði á píanó í æsku, söng lengi í Hamrahlíðarkórnum og Mótettukórnum og um árabil sá hún um útvarpsþætti á Rás 1, þar sem hljómaði heimstónlist, samtímatónlist, klassísk tónlist og menningarumfjöllun af ýmsu tagi.    

Síðast en ekki síst er það Hildur Kristín Stefánsdóttir, formaður dómnefndar. Hildur er tónlistarkona úr Reykjavík fædd 1988. Hún hefur getið sér gott orð sem lagahöfundur og pródúsent fyrir sína eigin tónlist og fyrir aðra listamenn. Hún hóf tónlistarferil sinn í indíhljómsveitinni Rökkurró 2006 sem söngkona, sellóleikari og lagahöfundur, en með hljómsveitinn gaf hún út þrjár breiðskífur og fór á fjölmörg tónleikaferðalög. Árið 2015 sneri hún sér yfir í poppið þegar hún samdi og flutti lagið Fjaðrir í Söngvakeppni sjónvarpsins. 2016 hóf hún svo formlega sólóverkefnið undir eigin nafni og gaf út lagið I'll Walk With You sem hlaut mikla útvarpsspilun og Íslensku tónlistarverðlaunin sem popplag ársins 2017, ásamt því að hún var tilnefnd sem nýliði ársins. Sama ár átti hún einnig lagið Bammbaramm í úrslitum Söngvakeppninnar. Hún hefur gefið út tvær EP plötur og gefur út sína fyrstu breiðskífu, Afturábak, í lok árs. Hildur hefur unnið mikið sem lagahöfundur og pródúsent erlendis og hérlendis, kennt lagasmíðar og situr í stjórn STEF og FTT

Úrslitin verða kynnt við hátíðlega athöfn á Litlu jólum Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal, mánudaginn 9. desember kl. 16:00 í Úlfarsárdal.

Takið þátt og látið jólaljós ykkar skína skært! 

Úrslit - viðburður á heimasíðu.

Úrslit - viðburður á Facebook.

Nánari upplýsingar á netfanginu jolalag@borgarbokasafn.is 

Flokkur
UppfærtÞriðjudagur, 19. nóvember, 2024 13:38