Um þennan viðburð

Tími
15:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Aldur
12 - 16 ára
Tungumál
íslenska
Börn
Tungumál
Ungmenni

Íslenskunámskeið | Mín saga

Þriðjudagur 18. febrúar 2025

Á námskeiðinu verður kennd íslenska í gegnum skapandi skrif. Þemað í þessu námskeiði er veislur, ferðalög, vinátta, tíska og óvæntir atburðir. Þátttakendur lesa örsögur í tíma og ræða efni þeirra. Síðan verður nemendum leiðbeint við ritun einfalds texta á íslensku. Þeir sem vilja geta deilt textum sínum í lok hvers námskeiðs og þegar allar fjórar lotur eru búnar verður upplestrarviðburður.

Námskeiðið er ætlað krökkum á aldrinum 12-16 ára sem langar til þess að bæta orðaforða sinn, leika sér með tungumálið og þjálfa sig í skapandi skrifum. Skemmtilegur og spennandi orðaforði verður lagður inn, unnið með efni líðandi stundar og orðasambönd og nýyrðasmíð. Hægt er að sækja eina eða fleiri lotur þar sem hver lota er kennd sem sjálfstæð eining. 

Lotur:
Borgarbókasafnið Grófinni - mánudagana 3. og 10. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30
Borgarbókasafnið Kringlunni - þriðjudagana 11. og 18. febrúar frá kl. 15:30 - 17:30
 

Hámarks fjöldi á hverju námskeiði: 12 þátttakendur.
Þátttaka er ókeypis en skráning nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan.

Berglind Erna Tryggvadóttir og Þórunn Rakel Gylfadóttir leiða námskeiðið. Þær eru rithöfundar og íslenskukennarar, auk þess sem þær semja námsgögn í íslensku.

Sjá yfirlitssíðu verkefnisins
 

Viðburður á Facebook
 

Nánari upplýsingar veita:

Berglind Erna Tryggvadóttir
berglinderna12@gmail.com

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is | 411 6115