Rafbókasafnið | Hljóðbækur, rafbækur og tímarit
Þú getur hlustað á hljóðbækur, lesið rafbækur og skoðað tímarit í Libby appinu eða á rafbokasafn.is.
Hvað er Rafbókasafnið?
Rafbókasafnið er samstarfsverkefni Landskerfis bókasafna og Borgarbókasafnsins. Markmiðið er að bjóða almenningi upp á ókeypis aðgang að fjölbreyttu úrvali hljóðbóka, rafbóka og tímarita, en Rafbókasafnið er aðgengilegt lánþegum nær allra almenningsbókasafna á Íslandi.
Þau sem eiga bókasafnskort í gildi hjá Borgarbókasafninu eða öðrum aðildarsöfnum Rafbókasafnsins, geta fengið bækur og tímarit að láni á Rafbókasafninu. Sjá lista yfir aðildarsöfn hér.
Hvernig fæ ég aðgang að Rafbókasafninu?
Símar og spjaldtölvur
- Einfaldast er að nota Rafbókasafnið í síma eða í spjaldtölvu með Libby appinu. Nálgist appið í App Store eða Google Play.
- Strikamerkisnúmerið á bókasafnskortinu og lykilorðið fyrir Mínar síður og leitir.is er notað til þess að virkja aðganginn.
- Nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Tölvur
- Hægt er að hlusta, lesa og skoða úr tölvunni á rafbokasafn.is, en einnig er hægt að setja upp Libby appið á libbyapp.com.
- Strikamerkisnúmerið á bókasafnskortinu og lykilorðið fyrir Mínar síður og leitir.is er notað til þess að virkja aðganginn.
- Ef þú vilt hlaða niður bókum í tölvuna þarf að setja upp Adobe Digital Editions forritið.
- Nánari leiðbeiningar hér fyrir neðan.
Lesbretti
- Ekki er hægt að nota Rafbókasafnið á Kindle og Storytel lesbrettum.
- Til þess að hlaða niður bók á öðrum lesbrettum þarf fyrst að stofna Adobe ID-aðgang og sækja og setja upp Adobe Digital Editions forritið á tölvu. Bókinni er svo hlaðið niður á tölvuna, hún opnuð í Adobe Digital Editions og færð þaðan yfir á lesbrettið.
Strikamerkisnúmer og lykilorð
Manstu ekki lykilorðið eða viltu búa til lykilorð?
- Lykilorðið sem notað er til að skrá sig inn á Rafbókasafnið er það sama og á borgarbokasafn.is og leitir.is.
- Hér býrðu til eða sækir um nýtt lykilorð fyrir Mínar síður og Rafbókasafnið. ATH. User ID = kennitala
Hvernig finn ég strikamerkisnúmerið mitt?
- Kortanúmerið er á bókasafnskortinu þínu og byrjar oftast á GE, A, B, IL eða 400.
- Ef þú ert með stafrænt bókasafnskort getur þú skoðað kortanúmerið í símanum.
- Þú getur einnig fundið það undir Mínar stillingar á Mínum síðum á vef Borgarbókasafnsins.
Annað
Bókasafnskortið mitt er útrunnið
- Skráðu þig inn á Mínar síður hér á vef Borgarbókasafnsins og þér verður vísað áfram á greiðslusíðu.
- Þau sem eru með frítt bókasafnskort þurfa að leita til afgreiðslu safnanna.
Hvað má hafa bækur lengi í láni?
- Lánstími er ýmist 7, 14 eða 21 dagur fyrir rafbækur og 14 dagar fyrir hljóðbækur.
- Gögnin skilast sjálfkrafa að lánstíma liðnum en við hvetjum þig til að skila gagninu um leið og þú klárar - svo næsti geti notið.
- Ef enginn er að bíða eftir bókinni getur þú framlengt lánstímann.
- Það eru engar sektir á Rafbókasafninu.
Hvað má hafa margar bækur að láni í einu?
- Þú getur haft 21 bók að láni í einu og sett inn 21 frátekt.
Þarf að tengast netinu til að lesa eða hlusta á rafbækur?
- Þú getur hlaðið niður bókum og tímaritum í Libby appinu fyrir síma og spjaldtölvur eða Adobe Digital Editions forritinu fyrir tölvur og lesbretti og notið þegar þér hentar.
- Nettenging er nauðsynleg til að lesa og hlusta í vafra.
Er hægt að nota Rafbókasafnið án þess að hlaða niður öppum eða forritum?
- Hægt er að hlusta og lesa í vafra á tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma og því er ekki nauðsynlegt að hlaða niður neinum öðrum forritum til þess.
Ef þú ert með spurningar eða ábendingar varðandi Rafbókasafnið er hægt að senda póst á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is eða leita til starfsfólksins á þínu bókasafni.