Lautarferð á bókasafninu
Venesúelskt og ítalskt góðgæti í pikknikk-körfunni. Angela Figus ásamt ungmennum frá Fjölsmiðjunni eru gestgjafara. Þau deila snarli og stinga upp á áhugaverðu málefnum til umræðu á spænsku, ítölsku og íslensku.
Hér er ekkert rok, enginn kuldi, ekkert kjaftæði, bara næs!
Öllum er velkomið að koma með eigið nesti og setjast á grasgræna svæðið. Gott er að kippa með sér teppi eða einhverju mjúku til að tylla sér á undir sólhlífunum.
Með Lautarferðum á bókasafninu bjóðum við upp á nýja nálgun til að eiga samtal á jafningagrundvelli um ýmis málefni. Í hverri lautarferð er nýr gestgjafi sem býður almenningi í lautarferð, með umræðuefni að eigin vali.
Meira um lautarferðirnar HÉR.
Öll velkomin!
Frekari upplýsingar    
Dögg Sigmarsdóttir    
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka     
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is      
Martyna Karolina Daniel    
Sérfræðingur | Fjölmenningarmál    
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is 
 
         
          