Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 13:00
Verð
Frítt
Hópur
Ungmenni
Aldur
10-12 & 13-15
Liðnir viðburðir

Rappsmiðja með Reykjavíkurdætrum | 10-12 & 13-15 ára

Laugardagur 12. nóvember 2022

Ókeypis rappsmiðja með Reykjavíkurdætrum fyrir 10-12 ára og 13-15 ára. Báðir aldurshópar taka þátt á sama tíma, en hóparnir vinna í aðskildum rýmum. Leiðbeinendur eru þær Ragga Holm og Steinunn Jónsdóttir.

Skráning nauðsynleg. Vinsamlegast sendið nafn og aldur á sigrun.antonsdottir@reykjavik.is

Ragga Holm er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og starfaði bæði sem aðstoðar forstöðumaður á frístundaheimili og félagsmiðstöð og hefur haldið margskonar námskeið fyrir grunnskólabörn, unglingadeildir og menntaskóla. Hún starfar nú sem útvarpskona á Kissfm 104.5, plötusnúður og rappari í hljómsveitinni síðan 2017. Árið 2018 gaf Ragga einnig út sóló plötuna Bipolar sem fékk góðar undirtektir. 

Steinunn Jónsdóttir stundaði nám í klassískum söng og víóluleik á sínum yngri árum samhliða krefjandi dansnámi í Listdansskóla Íslands. Hún hefur síðan 2011 starfað sem tónlistarkona og danskennari. Hún er einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Amabadama og fyrir texta sína á plötunni Heyrðu mig nú var hún tilnefnd textahöfundur ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 2014/2015. Hún hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og því að kenna bæði framkomu og textasmíð.

Hljómsveitin Reykjavíkurdætur kom eins og stormsveipur inn í íslenskt menningarlíf fyrir um áratug og vakti strax mikla athygli fyrir hispurslausa texta, óheflaða framkomu og sérstöðu sína sem hópur kvenna í íslenskri rappsenu. Frá árinu 2013 hefur hljómsveitin komið fram í yfir 20 löndum, spilað á öllum helstu hátíðum og viðburðum hérlendis og unnið til fjölda verðlauna, en má þá helst nefna hin virtu MME verðlaun á Eurosonic og viðurkenningu Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. 

Hljómsveitin hefur síðustu fjögur árin stefnt fleyi sínu á erlend mið en stimplaði sig rækilega inn að nýju í íslenskt tónlistarlíf með þátttöku sinni í Söngvakeppninni 2022

Dæturnar hafa á sínum starfsferli, gefið út þrjár plötur og fjölda smáskífa auk þess sem þær hafa staðið fyrir námskeiðum í textasmíð og rappi fyrir börn og haldið fyrirlestra bæði hérlendis og erlendis. Meðlimir sveitarinnar eru átta en það eru þær Ragga Holm og Steinunn sem ætla að kenna ungum og upprennandi röppurum Grafarvogs allt sem þær kunna um textasmíð og rapp.

Viðburðurinn á Facebook

Nánari upplýsingar veitir:
Sigrún Antonsdóttir, sérfræðingur
sigrun.antonsdottir@reykjavik.is | 411 6230