Listaverk eftir Sæunni Þorsteinsdóttur
Hvernig verður landakort að landslagi?

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 16:00
Verð
Frítt
Fræðsla
Spjall og umræður
Sýningar

Samanbrotið landslag | Leiðsögn um sýninguna

Sunnudagur 6. nóvember 2022

Sæunn Þorsteinsdóttir segir okkur frá þrívíðum pappírsverkum sínum en landakort hafa öðlast nýtt líf í höndum hennar.

Gefst gestum þar gott tækifæri til að fræðast og ræða við listamanninn um myndverkin, aðferðir, hugmyndir og velta vöngum um sýninguna. 

Listaverkin gerir Sæunn úr landakortum og verða kortin þannig að öðru og nýju landslagi heldur en þau áttu að sýna í upphafi.

Landakort draga upp svipbrigði landsins á myndmáli. Kortið er flatt en gefur samt hugmynd um dýpt dala, stærð vatna, lengd fjarða og vekur minningar um eyðifegurð annesja og mikilfengleik fjalla. Uppdrættirnir færa landslag í mælanlegt form með línum og tölum en síðan koma minningar og örnefni og bæta við sögum, lífi og lit.

 „Hæðarlínur, tala og nafn færð á pappír og allt í einu get ég haldið á heilu fjalli. Pappírinn er fisléttur en samt finn ég þyngd fjallsins því uppdrátturinn kemur hugmyndinni um fjallið svo vel til skila og í huganum get ég valið um að sjá fjallið fyrir mér blátt í fjarska eða að tylla mér á tindinn og horfa vítt og breitt„ segir Sæunn í hugleiðingu sinni um verkin.

Sæunn lærði myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og tónlist við Tónlistarskólann í Reykjavík. Frá Háskólanum á Akureyri útskrifaðist hún með B.ed gráðu í Mynd- og tónmennt árið 2005. Einnig hefur hún sótt námskeið í sýningarhönnun og sjónlistum af ýmsu tagi á Íslandi, Austurríki, Bandaríkjunum og Japan. Einkasýningar Sæunnar eru sex talsins auk fjölda samsýninga sem hún hefur tekið þátt í.

Heimasíða Sæunnar 

Nánari upplýsingar:
Katrín Guðmundsdóttir
Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is