Tómas Helgi Kristjánsson sýnir í Spönginni
Verkin á sýningunni eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða.

Um þennan viðburð

Tími
16:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Sýningar

Sýning | Veiðislóð

Föstudagur 5. júní 2026 - Fimmtudagur 30. júlí 2026

Veiðislóð er sýning eftir Tómas Helga Kristjánsson.

Verkin eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðiáa og vatnasvæða. Með einföldum línum og stílhreinni framsetningu eru form staðanna dregin fram á nýjan hátt, þar sem áherslan færist frá smáatriðum yfir í heild og tilfinningu. Hvert verk er þannig bæði staður og minning- tilraun til að fanga það sem margir tengja við en sjá sjaldan á þennan hátt.

Verk Veiðislóðar vísa í árnar sem við þekkjum, minningarnar sem verða til á bökkum þeirra og tilfinningarnar sem við berum gagnvart þeim. Þau minna á ósnortna náttúru og ábyrgð okkar gagnvart henni.

Sýningin er fyrsta einkasýning Tómasar og markar upphaf á frekari þróun verkefnisins Veiðislóðar.

Sýningaropnun verður föstudaginn 5. júní kl 16:30.

Hluti af sölu verka á sýningunni rennur til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF).

 

Viðburðurinn á Facebook

Nánari upplýsingar veita:

Tómas Helgi Kristjánsson
veidislod@veidislod.is

Halldór Óli Gunnarsson
Borgarbókasafninu Spönginni 
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is

Merki