Auðlesið mál, Snorri Rafn
Auðlesið mál, Snorri Rafn

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
íslenska og táknmál
Fræðsla

Fræðakaffi | Auðlesið mál

Mánudagur 17. febrúar 2025

Snorri Rafn Hallsson verkefnastjóri Miðstöðvar um auðlesið mál segir frá verkefninu Audlesid.is og mikilvægi þess að fólk fái upplýsingar á máli sem það skilur. Auðlesið mál nýtist þeim sem eiga erfitt með að lesa texta, t.d. fólki með þroskahömlun, fólki sem er lesblint eða þeim sem eru að læra íslensku. Texti á auðlesnu máli veitir líka fleirum möguleika á að njóta menningar af ýmsu tagi. Innan skamms kemur út ítarleg handbók með leiðbeiningum um þýðingu og ritun texta á auðlesnu máli.

HÉR er að finna helstu upplýsingar um aðgengismál í Borgarbókasafninu Spönginni.
 

Uppskera - Menningarhátíð fatlaðra 2025

Viðburðurinn er haldinn í tengslum við menningarhátíðina Uppskeru sem fram fer í Reykjavík dagana 8. febrúar til 8. mars 2025. Tilefni hátíðarinnar er 20 ára afmæli fötlunarfræða við Háskóla Íslands. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á framlagi fræðafólks, samtaka fatlaðs fólks og fatlaðs listafólks til íslenskrar menningar.

Lykilviðburðir hátíðarinnar verða tveir, málþing í Háskóla Íslands 21. febrúar og menningarhátíð í Hörpu 22. febrúar. Auk þess verða viðburðir víðs vegar um borgina þar sem gestum gefst tækifæri á að njóta listsköpunar fatlaðs fólks. Í boði verður myndlistasýning, kvikmyndasýning, bókmenntakvöld, gjörningakvöld, ljóðakvöld, smiðjur auk viðburða á söfnum borgarinnar. 

Dagskráin verður aðgengileg á auðlesnu máli og allir viðburðir táknmálstúlkaðir. Í Hörpu verður rittúlkun á ensku og sjónlýsing á íslensku og ensku. Hátíðin er öllum opin að kostnaðarlausu.

Verið öll velkomin á Uppskeru!

hi.is/uppskera

 

Nánari upplýsingar um fyirlesturinn veita:
Snorri Rafn Hallsson, verkefnastjóri Miðstöðvar um auðlesið mál, 
snorrirafn@fjolmennt.is | 530 1327

Sigríður Stephensen, sérfræðingur
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230