Um þennan viðburð
Sýning | Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra
Verið velkomin á sýninguna Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra!
Móðurmál, samtök um tvítyngi, hlutu styrk frá þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra.
Verkefnið er unnið með nemendum í 5. og 6. bekk Fellaskóla. Börnin hafa fengið kynningu á Heimsmarkmiðunum og valið markmið til að vinna dýpra með, á skapandi hátt.
Afrakstur vinnunnar er meðal annars þessi, uppskerusýning barnanna, og er fjölskyldum og öðrum áhugasömum boðið að koma til að eiga góða stund á bókasafninu með börnunum, njóta og fagna fallegu verkunum þeirra sem þau hafa lagt mikla vinnu í að skapa.
Þar sem Heimsmarkmiðin eru til á mörgum tungumálum er hægt að skoða þau bæði á íslensku og öðrum tungumálum fyrir þau sem skilja þannig innihaldið betur. Á sýningunni verða Heimsmarkmiðin sýnileg á 35 tungumálum.
Sameiginlega samtalið í ferlinu fer fram á íslensku, því við verðum öll að geta talað saman um mikilvæg málefni á íslensku.
Kennsluhugmyndir undir yfirskriftinni „Heimsmarkmið sameinuðu þjóðanna - mál okkar allra“ verða sett fram á vef Samtakanna Móðurmáls seinna í haust.
Sýningin er staðsett inn á bókasafninu og er opin skv. opnunartíma þess.
Öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:
Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kennari og menningarmiðlari
kristinvil@gmail.com