Fingur og forynjur

Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:30
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Börn

Smiðja | Fingur og forynjur

Sunnudagur 30. október 2022

Á Hrekkjavöku fyllist allt af ferlegum skrímslum, nornum og forynjum, meira að segja á fingrunum! Lærum að búa til fingrabrúður fyrir Hrekkjavökuna með föndurmeistaranum Sigurrós Sóleyju Jónsdóttur.

Með brúðunum er svo hægt að búa til hrekkjavöku-brúðuleikhús fyrir vini og fjölskyldu eða leyfa brúðunum að gægjast fyrir horn eða út um glugga og sjá hvort þær nái ekki að hræða líftóruna úr einhverjum!

Öll velkomin!

Viðburður á facebook.


Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, sérfræðingur
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 -6145