
Um þennan viðburð
Langspilssmiðja Borgarskóla | Barnamenningarhátíð
Nemendur í 5. bekk Borgaskóla blása til tónleika á Barnamenningarhátíð og deila afrakstri langspilssmiðja undir leiðsögn langspilsleikarans og þjóðfræðingsins Eyjólfs Eyjólfssonar.
Í smiðjunum lærðu nemendurnir að tileinka sér undirstöðuatriðin í langspilsleik, svo sem plokk með álftafjöðrum, stramm og bogastrok.
Einnig hafa þau fengið þjálfun í samspili með tveimur meðlima kammerhópsins Nordic Affect sem spila á barokkhljóðfæri og raftónlistarmanninum Stefanos Skialivas sem jafnframt er meðlimur í Intelligent Instruments Lab við Háskóla Íslands.
Tónleikarnir sameina hljóðheim margra langspila, barokkhljóðfæra og gervigreindar í spuna og í flutningi á íslenskum þjóðlögum og barokkverkum.
Nemendur koma fram í tveimur hópum og fara tónleikar því fram kl. 12:30 og 13:30 þann 22. apríl í Borgarbókasafninu Spönginni. Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði.
Nánari upplýsingar veitir:
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6230