
Um þennan viðburð
Krílastundir í Árbæ
Krílastundir eru notalegar og óformlegar samverustundir í barnadeildinni. Þar gefst gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin.
Það er heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.
Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum um uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af barnabókum til að kveikja áhuga krílanna á bókmenntum!
Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leik, spjall og lestur.
Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins
Nánari upplýsingar:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 4116250