Húsabyggð 2023
Litrík hús úr fjölbreyttum efniviði

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Börn
Sýningar

Sýning | Húsabyggð 2023

Mánudagur 5. júní 2023 - Miðvikudagur 28. júní 2023

Börnin á frístundaheimilinu Kastala í Húsaskóla hafa í vetur búið til falleg hús sem nú eru til sýnis í bókasafninu. 

Verkefnið er samstarfsverkefni milli frístundaheimilisins Kastala við Húsaskóla, hjúkrunarheimilisins Eirar og Borgarbókasafnsins Spönginni.

Húsin eru í grunninn búin til úr pappakössum og öðru sem til fellur. Börnin sjá um að innrétta húsin og má glögglega sjá að persónulegur smekkur hvers barns hefur fengið að njóta sín til fullnustu.

Húsgögn og innréttingar eru unnin úr efnivið sem safnast hefur saman á hjúkrunarheimilinu og frístundaheimilinu; tannstönglar, tappar, íspinnaspýtur, svo eitthvað sé nefnt.

Húsin eru sem ævintýri, litrík og nostursamlega unnin.

Signý Björk Ólafsdóttir frístundaleiðbeinandi í frístundaheimilinu Kastala hefur stýrt verkefninu.

 

Nánari upplýsingar veita: 

Erla Erla Bára Ragnarsdóttir
Forstöðumaður frístundaheimilisins Kastala, Húsaskóla 
kastali@rvkfri.is


Katrín Guðmundsdóttir
Deildarstjóri, Borgarbókasafninu Spönginni
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is 

Merki