Flökkusýning frá Listasafni Reykjavíkur
Heima | Flökkusýning frá Listasafni Reykjavíkur

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Sýningar

Sýning | Heima

Miðvikudagur 11. júní 2025 - Laugardagur 30. ágúst 2025

Myndlistarmenn hafa í gegnum tíðina fjallað um hugtakið „heima“ á margvíslegan hátt. Hvar á maður heima? Í alheiminum, á jörðinni, á Íslandi, úti á landi, í Stykkishólmi, í hverfinu, í blokkinni, í húsinu, í íbúðinni, hjá foreldrum sínum, hjá börnunum sínum, hjá afa og ömmu, í vinahópnum, í skólanum, í frístundastarfinu, í vinnunni, í hægindastólnum? Eða kannski á nokkrum stöðum samtímis?

Orðið „heima“ hefur gjarnan tilvísun í umhverfi þar sem við erum örugg. Þó finna sumir ekki til öryggis á heimilum sínum. Orsök þess getur verið inni á heimilinu, s.s. streita,  fíknivandamál og heimilisofbeldi, eða utanaðkomandi ógnir eins og heimsfaraldur, fátækt eða stríð. Heima er ekki eins fyrir alla. 

Við bjóðum ykkur heim í stofu gleði og öryggis þar sem listaverkin hanga á veggjunum, bjóðum ykkur að ganga inn og njóta myndlistarinnar í hlýlegu og heimilislegu umhverfi bókasafnsins.

Flökkusýning frá Listasafni Reykjavíkur

Sýningin er sett upp í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur. Flökkusýningarnar hafa fram til þessa aðallega verið settar upp í skólum en nú gefst almenningi kostur á njóta þeirra á Borgarbókasafninu. Sýningin er opin samkvæmt opnunartíma safnsins.

Sjá allar nánari upplýsingar um flökkusýningar Listasafns Reykjavíkur.
 

Nánari upplýsingar veita:

Ariana Katrín Katrínardóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur
ariana.katrin.katrinardottir@reykjavik.is | 411 6407

Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri Borgarbókasafnsins Gerðubergi
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is  | 411 6170