Um þennan viðburð

Tími
17:00 - 17:45
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Kaffistundir

Kvikmyndakaffi | Aðlögun og ummyndanir

Mánudagur 27. mars 2023


Kvikmyndagerðarkonurnar Tinna Hrafnsdóttir og Ása Helga Hjörleifsdóttir koma á kvikmyndakaffi í Spönginni og fjalla um kvikmyndir sínar sem þær hafa leikstýrt og aðlagað frá skáldverkum. Ása Helga leikstýrði kvikmyndinni Svanurinn árið 2017 eftir skáldsögu Guðbergs Bergssonar og á síðasta ári kom frá henni önnur mynd í fullri lengd, aðlögun á skáldverki Bergsveins Birgissonar, Svar við bréfi Helgu. Kvikmyndin Skjálfti er fyrsta bíómynd Tinnu Hrafnsdóttir í fullri lengd, aðlöguð frá skáldsögu Auðar Jónsdóttur Stóri skjálfti. Þær Ása Helga og Tinna segja frá tilurð og sköpunarferli verka sinna, spjalla saman um aðlögun og umbreytingu frá skáldverki að kvikmynd.

Nánar um Skjálfta og verk Tinnu Hrafnsdóttur.

Sjá viðburð á facebook.

Umsjón:
Soffía Bjarnadóttir, verkefnastjóri | bókmenntaviðburðir
soffia.bjarnadottir@reykjavik.is 
Miðlun og nýsköpun | Borgarbókasafnið, s. +354 411 6122
www.borgarbokasafn.is