Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 11:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
0-3 ára
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Börn
Fræðsla

Krílastundir í Kringlunni | Talmeinafræðingur

Föstudagur 14. mars 2025

Einn föstudag í mánuði eigum við saman notalega morgunstund á Borgarbókasafninu Kringlunni, njótum samveru, spjöllum og leikum með litlu krílunum.
Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Dagskráin er miðuð út frá börnum á aldrinum 0-3 ára en auðvitað eru öll velkomin.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim.
Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum!

Athugið að safnið opnar ekki fyrr en 11:00, en starfsmaður verður við dyrnar og hleypir ungbörnum og fylgifiskum inn.

Heitt kaffi og te í boði.
Sjáumst!
 

14. mars - Talmeinafræðingur kíkir í heimsókn

25. apríl - Hvað hefur bókasafnið uppá að bjóða?

16. maí - Brjóstagjafaráðgjafar gefa góð ráð
 

Viðburður á Facebook
Hér getur þú lesið um alla fjölskyldumorgna á Borgarbókasafninu. 
 

Nánari upplýsingar veitir:
Brynhildur Lea Ragnarsdóttir, barnabókavörður
brynhildur.lea.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411-6200