Sumarsmiðjurnar okkar

Sköpun, listir og gleði í sumarsmiðjum Borgarbókasafnsins fyrir börn og unglinga.

Í sumar gefst börnum og unglingum í 3. -10. bekk kostur á að virkja sköpunarkraftinn í fjölbreyttum smiðjum þar sem listin og gleðin mun ráða ríkjum. 

Með sumarsmiðjum safnsins er leitast við að breikka úrvalið af námskeiðum sem er í boði fyrir börn og unglinga, svo öll finni eitthvað við sitt hæfi. Sem dæmi býður safnið upp á námskeið í sagnagerð, stopmotion, tónlistar- og teiknismiðjur.

Sumarsmiðjurnar eru, líkt og öll dagskrá Borgarbókasafnsins, alltaf ókeypis.

Skráning hefst 28. apríl kl. 13 á Abler

Nánari upplýsinar veitir:
Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is