Sumarsmiðja | Teiknað í anda Ormhildar

Um þennan viðburð

Tími
Á opnunartíma
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Tungumál
íslenska
Börn

FULLBÓKAÐ! Sumarsmiðja | Teiknað í anda Ormhildar

Miðvikudagur 12. ágúst 2026 - Föstudagur 14. ágúst 2026

Komdu í þessa skapandi smiðju og lærðu hvernig Þórey Mjallhvít ímyndaði sér söguna af Ormhildi, vinsælu sjónvarpsþáttaröðinni sem gerist í fjarlægri framtíð þar sem jöklar hafa bráðnað og þjóðsagnaverurnar Íslands eru komnar fram í dagsljósið.

Dagskrá smiðjunnar:
Í þessari smiðju gefst krökkum tækifæri til að læra um karakterhönnun og sögugerð. Þórey mun sýna þátttakendum vinnuna á bak við Ormhildarsögu, karakterhönnunarferlið og söguferlið. Krakkarnir munu síðan búa til sína eigin karaktera og myndasögu byggða á þeim. 

Aldur: Börn fædd 2014, 2015, 2016 og 2017.
Tími: Smiðjan stendur yfir í þrjá daga, 12.-14. ágúst kl. 10:00-12:00.
 

Fullbókað er í smiðjuna en hægt er að skrá sig á biðlista.
Skráning hefst 28. apríl kl. 13 á Abler

Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250