
Um þennan viðburð
Sýning | Glóandi gull
Anna Jóna Hauksdóttir starfaði lengst af sem leikskólakennari og fléttaði gjarnan hvers kyns myndlist og föndri inn í starfið með börnunum.
Form, litir, áferð og jafnvægi í því sem hún sér hefur heillað hana, jafnt innan dyra sem úti í náttúrunni. Eftir að hún fór nýlega á námskeið í málun uppgötvaði hún eiginleika olíulitanna og hvernig ákveðnir töfrar eiga sér stað í meðferð þeirra. Myndlistariðkunin veitir henni mikla gleði og innri ró, vinnan við verkin tekur tíma en sá tími fer líka í að tengjast verkunum og allt gengur upp að lokum.
Gullni liturinn hrífur Önnu Jónu æ meira og hefur hún gaman af að bæta honum inn á verk sín, sem gefur þeim glæslegan og ævintýralegan blæ.
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Glóandi gull á Borgarbókasafninu í Spönginni, laugardaginn 7. september kl. 14.
Nánari upplýsingar veita:
Anna Jóna Hauksdóttir
ajh@centrum.is | 898 8574
Sigríður Stephensen
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is | 411 6230