Yrsa Sigurðardóttir situr fyrir svörum
Yrsa Sigurðardóttir situr fyrir svörum

Um þennan viðburð

Tími
13:15 - 14:15
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Liðnir viðburðir

Glæpafár á Íslandi | Yrsa Sigurðardóttir spjallar um glæpaskrif

Laugardagur 14. september 2024

Hefur þú áhuga á glæpaskrifum? 

Borgarbókasafnið efnir til ritsmiðju í glæpasagnaskrifum í tilefni af dagskránni Glæpafár á Íslandi.  Rithöfundur, Yrsa Sigurðardóttir, kíkir í heimsókn eftir smiðjuna, spjallar um eigin skrif og situr fyrir svörum jafnt nemenda sem annarra áhugasamra gesta.
Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi stýrir umræðum. 

Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár. 

Vekjum jafnframt athygli á að rithöfundurinn Skúli Sigurðsson situr fyrir svörum laugardaginn 21. september, en hann hlaut Blóðdropann fyrir frumraun sína, Stóra bróður, árið 2022.

Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.

Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.

Viðburður á Facebook.


Nánari upplýsingar veita:

Guðrún Dís Jónatansdóttir, deildarstjóri miðlunar
gudrun.dis.jonatansdottir@reykjavik.is

Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og leiðbeinandi
sunnadis@gmail.com