Pappírsperlur
Litríkar perlur úr pappír

Um þennan viðburð

Tími
16:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Föndur

Tilbúningur | Pappírsperlur

Fimmtudagur 9. nóvember 2023

Langar þig að eiga notalega stund þar sem sköpunarkrafturinn fær njóta sín í góðum félagsskap?

Föndrum saman, búum eitthvað til úr einhverju og endurnýtum alls konar. Leiðbeinandi kemur með hugmyndir, efni og áhöld og aðstoðar við tilbúninginn.

Í þessum tilbúningi ætlum við að búa til perlur úr pappír. 

Í perlugerð nýtum við litskrúðugan pappír og búum til perlur af öllum stærðum og gerðum. Klippum og límum og endurnýtum pappír úr gömlum bókum og tímaritum af bókasafninu og búum þannig til verðmæti úr verðlitlu efni.

Pappírsperlurnar má nýta í margskonar skartgripi og skraut

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir textílhönnuður, kennari og bókavörður leiðbeinir.

Tilbúningur í Árbæ er opinn öllum. 

Aðgangur er ókeypis og skráning er ekki nauðsynleg. 

Tilbúningur fer fram í Borgarbókasafninu í Árbæ annan fimmtudag hvers mánaðar og í Borgarbókasafninu Spöng  fyrsta miðvikudag hvers mánaðar klukkan 16:00.

 

Viðburðurinn á facebook 


Nánari upplýsingar veitir:

Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, bókavörður
arnthrudur.osp.karlsdottir@reykjavik.is | 411 6230

Katrín Guðmundsdóttir, deildarstjóri
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6230