Opið samtal | Sögur af verkfallsvörslu
Hefur þú verið í verkfallsvörslu? Hvernig upplifðir þú það að standa vörð um réttindi þín og annarra í þínu stéttarfélagi?
Við bjóðum í opið samtal með formanni og félagsfólki BSRB þar sem við deilum reynslusögum af baráttu fyrir sameiginlegum hagsmunum og leitum leiða til að styðja hvert annað í slíkum ferlum. Væri hægt að nýta bókasafnið sem vettvang til stuðnings og fræðslu meðlima stéttarfélaga?
Öll velkomin að taka þátt í samtalinu og deila sögum af eigin reynslu.
Þátttaka ókeypis.
Viltu vita meira um Opið samtal? Þetta er vettvangur fyrir heiðarleg og opin samskipti. Hér könnum við ólík samræðuform og í sameiningu lærum við nýjar leiðir til að ræða málefni sem standa okkur nærri.
Frekar upplýsingar
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is