Umframopnun+

Á Borgarbókasafninu í Kringlunni og Sólheimum er notendum boðið upp á að nýta sér þjónustu safnanna utan hefðbundins þjónustutíma  og án starfsfólks. Þessi þjónusta kallast Umframopnun+.


Hvenær er Umframopnun+ í boði?

Umframopnun+ Kringlunni

Mán - fim: 8:00 - 10:00 & 18:30 - 22:00
Fös: 8:00 - 11:00 & 18:30 - 22:00
Lau: 8:00 - 11:00 & 17:00 - 22:00
Nánari opnunartímar

Umframopnun+ Sólheimum

Mán - fös: 18:00 - 22:00
Lau: 15:00 - 22:00
Nánari opnunartímar



Hvernig fæ ég aðgang?

Athugið að notendur þurfa að eiga bókasafnskort í gildi, virkt PIN númer og hafa náð 18 ára aldri.


Hvernig kemst ég inn?

Notendur með aðgang að Umframopnun+ skrá sig inn með kennitölu og PIN númeri. Börn mega koma með í fylgd fullorðinna. Mikilvægt er að aðrir notendur sem ekki eru með umframopnun+ fylgi skráðum notendum hvorki þegar þeir koma inn eða fara út. Ekki er heimilt að lána öðrum aðganginn.


Hvað er hægt að gera á Umframopnun+?

Skila og fá lánað ・ Sækja frátektir ・ Lesa blöð, bækur og tímarit ・ Læra ・ Spila borðspil ・ Fara í tölvu ・ Nýta þráðlaust net ・ Prenta út ・ Ljósrita・Skanna・Funda með öðrum sem einnig hafa aðgang・Slaka á  


Nánari upplýsingar um Umframopnun+:

umframopnun@reykjavik.is