Naglinn | Í Vatnafjöllum
Málverkið Í Vatnafjöllum eftir Ásdísi Arnardóttur verður til sýnis á Naglanum á Borgarbókasafninu Sólheimum frá 6. september til 31. október. Verkið er fengið að láni úr Artótekinu, sem er til húsa í Borgarbókasafninu Grófinni.
Ásdís hefur í gegnum tíðina stundað fjölbreytt nám tengt myndlist, fyrst í Myndlistaskólanum á Akureyri og síðar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Listaháskóla Íslands sem og í Accademia di Belle Arti í Bologna á Ítalíu. Náttúra og samfélag eru áberandi í verkum Ásdísar, en verk hennar eru aðallega með vatnslitum á pappír en einnig gerir hún teikningar og bókverk.
Naglinn er heitið á sýningaröð á Borgarbókasafninu Sólheimum. Í Vatnafjöllum er 11. sýningin í röðinni. Hver sýning samanstendur af einu listaverki. Áhugasamir geta keypt verkið eða leigt það á kaupleigu en þá eignast viðkomandi verkið þegar það hefur verið greitt upp. Sé sýningarverkið keypt (eða leigt) má kaupandinn velja úr Artótekinu hvaða verk verður næst til sýnis á Naglanum.
Hægt er að leigja verkið Í Vatnafjöllum á 2.000 kr. á mánuði eða kaupa það á 57.000 kr.
Nánari upplýsingar um Artótekið, listamanninn og verkið má finna hér á heimasíðu Artóteksins
Nánari upplýsingar veita:
Lísbet Perla Gestsdóttir
lisbet.perla.gestsdottir@reykjavik.is | s. 411 6160
Hólmfríður Gunnlaugsdóttir
holmfridur.gunnlaugsdottir@reykjavik.is | s. 411 6112