FJÖRUVERÐLAUNIN | Tilnefningar 2021
Í dag 2. desember var tilkynnt um tilnefningar til Fjöruverðlaunanna 2021.
Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna (sís og trans) og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi, og voru tilnefningar tilkynntar við hátíðlega athöfn á Borgarbókasafninu í Grófinni.
Þrjár bækur eru tilnefndar í þremur flokkum.
Fagurbókmenntir:
Dyngja
Höfundur: Sigrún Pálsdóttir
Útgefandi: Forlagið - JPV útgáfa
Merking
Höfundur: Fríða Ísberg
Útgefandi: Forlagið - Mál og menning
Tanntaka.
Höfundur: Þórdís Helgadóttir
Útgefandi: Forlagið - Mál og menning
Fræðibækur og rit almenns eðlis
Kristín Þorkelsdóttir
Höfundar: Bryndís Björgvinsdóttir og Birna Geirfinnsdóttir
Útgefandi: Angústúra
Kvár: hvað er að vera kynsegin?
Höfundur: Elísabet Rún Þorsteinsdóttir
Útgefandi: Elísabet Rún.
Sigurður Þórarinsson: mynd af manni
Höfundur: Sigrún Helgadóttir
Útgefandi: Náttúruminjasafn Íslands
Barna- og unglingabókmenntir
Akam, ég og Annika
Höfundur: Þórunn Rakel Gylfadóttir
Útgefandi: Angústúra
Ótemjur
Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Útgefandi: Bjartur
Reykjavík barnanna: tímaflakk um borgina okkar
Höfundar: Margrét Tryggvadóttir og Linda Ólafsdóttir
Útgefandi: Forlagið - Iðunn
Við óskum tilnefndum höfundum hjartanlega til hamingju.
Hér á Borgarbókasafninu eru allar tilnefndar bækur - fyrir ykkur að lesa.
Velkomin á safnið!