Verðlaunahafar Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Jón St. Kristjánsson, Salvar Þór Sigurðarson (sem tók við verðlaunum fyrir Ævar Þór Benediktsson), Birna Daníelsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri.

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða á síðasta vetrardegi. Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkurborgar veitti verðlaunin. 

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar eiga sér lengsta sögu barnabókaverðlauna á landinu og fyrst veitt sem Barnabókaverðlaun fræðsluráðs Reykjavíkur árið 1973. Helsta markmið þeirra að vekja athygli á því sem vel er gert í bókaútgáfu fyrir unga lesendur og hvetja þá til bóklesturs.  

Verðlaunin eru veitt rithöfundum, myndhöfundum og þýðendum barnabóka fyrir metnaðarfullar ritsmíðar og þýðingar fyrir börn. Verðlaunin eru því þrískipt, þ.e. veitt eru verðlaun fyrir bestu frumsömdu íslensku barnabókina, bestu þýðingu á barnabók yfir á íslensku og bestu myndlýsingu í íslenskri barnabók.  

Fimmtán bækur, fimm í hverjum flokki, voru tilnefndar; fyrir bestu frumsömdu barna- og unglingabókina, bestu þýðingu á erlendri barna- og unglingabók og fyrir bestu myndlýsingu. Alls voru 77 bækur sendar inn til verðlaunanna í ár. Hér má lesa um hvaða bækur hlutu tilnefningu í ár.

Í dómnefnd sátu Sigrún Margrét Guðmundsdóttir formaður, skipuð af Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Salka Guðmundsdóttir, skipuð af Rithöfundasambandi Íslands og Halldór Baldursson, skipaður af Félagi íslenskra teiknara.   
 

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 í flokki frumsaminna verka hlýtur Ævar Þór Benediktsson fyrir bókina Skólastjórinn. Bókin er myndlýst af Elínu Elísabet Einarsdóttur og er útgefandi Forlagið / Mál og menning. 

Skólastjórinn

Í umsögn dómnefndar segir:   

Ævar Þór er einn af hornsteinunum í íslensku barnabókalífi og hefur sent frá sér fjölmargar bækur á síðustu árum sem ungir lesendur hafa tekið fagnandi. Hann hefur fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir starf sitt sem Ævar vísindamaður og verið valinn af Aarhus39, 39 bestu barnabókahöfundum Evrópu undir fertugu, auk þess sem hann var tilnefndur til Astrid Lindgren-verðlaunanna sem sérstakur lestrarhvetjari. Í Skólastjóranum segir Ævar Þór söguna af pjakknum Salvari sem er 12 ára en hann sækir í gríni um  stöðu skólastjóra og stendur frammi fyrir alls konar kostulegum vanda þegar hann öllum að óvörum hreppir starfið. 
 

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 í flokki myndlýsinga hlýtur Birna Daníelsdóttir fyrir bókina Ég bý í risalandi. Útgefandi er Forlagið / Vaka-Helgafell. 

Ég bý í risalandi

Í umsögn dómnefndar segir:   

Í bókinni „Ég bý í risalandi“ fá myndir Birnu að leika lausum hala með expressívri túlkun þar sem myndbygging og óvænt sjónarhorn eiga ríkan þátt í skapa andrúmsloft og frásögn sögunnar. Í þessari sterku umgjörð er hugljúf aðalpersóna sem fangar lesandann inn í heim þar sem stórt verður lítið og lítið verður stórt. Heildstætt verk þar sem fagurfræði og frásagnartækni mætast á háu plani.  
 

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2026 í flokki þýðinga hlýtur Jón St. Kristjánsson fyrir þýðingu bókarinnar Undrarútan. Höfundur bókarinnar er Jakob Martin Strid og er útgefandi Forlagið. 

Í umsögn dómnefndar segir:   

Undrarútan er stórvirki danska höfundarins Jakobs Martins Strid sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2024 – stór í sniðum, stór saga og stórvel teiknuð og skrifuð. Jón St. Kristjánsson þýðir söguna á lipran og gáskafullan hátt sem fangar vel litríkan heim sögunnar. Hann hugar einkar vel að samspili mynda og texta; þannig gerir hann íslenskum lesendum kleift að upplifa hina dásamlegu frásögn af Takú og risastóru undrarútunni. 
 

Mynd af verðlaunahöfum og viðtakendum verðlauna ásamt borgarstjóra fengin af vef Reykjavíkurborgar.

Flokkur
UppfærtFöstudagur, 24. apríl, 2026 16:03
Materials