Kristján Steinn Kristjánsson

Um þennan viðburð

Tími
11:00 - 16:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
-
Sýningar

Sýning | Gorma kvartett

Fimmtudagur 23. apríl 2026

Við höfum líklega öll heyrt dauf hljóð sem myndast inni í gormadýnum. Spring Quartet (Gorma kvartett) vinnur með þessi hljóð, kallar þau fram og magnar upp. Í gormunum er mikil spenna og með því að nota snerti hljóðnema (contact mic) sem nemur hljóð í föstum efnum er hægt að gera hljóðin skýrari og merkjanleg. Gormadýnan verður þannig að hljóðfæri eða hljóðskúlptúr þar sem hljóð myndast þegar hreyft er við gormunum, þeim strokið með fingrum, fiðluboga eða öðrum verkfærum. Listaverkið er eftir Kristján Stein Kristjánsson.

Á Big Bang og í Ævintýrahöllini á Barnamenningarhátíð verður ein dýnan úr kvartettnum hengd upp og gestum boðið að prófa að spila, snerta og kanna hvernig er hægt að skapa hljóð á nýjan og óvæntan hátt með hversdagslegum hlutum eins og gormadýnu!

Öllum er velkomið að spila á og kanna hljóðfærið.

Hægt er að sjá verkið í fullri stærð og fleira á www.kristjansteinn.com