Um þennan viðburð

Tími
10:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Aldur
9-12 ára
Tungumál
Óháð tungumáli, Unrelated to language
Börn

Sumarteiknismiðja með Blævi

Mánudagur 15. júní 2026 - Föstudagur 19. júní 2026

Finnst þér gaman að teikna? Komdu í teiknismiðju!

Við munum gera alls kyns teikniæfingar, myndasögur, leika okkur og hafa gaman.

Sumarsmiðjan verður að þessu sinni í boði fyrir börn fædd 2014-2017.

Smiðjan verður 15. til 19. júní frá klukkan 10:00-12:00. Það verður frí 17. júní. 

Blær Guðmundsdóttir teiknari og rithöfundur hefur teiknað í fjölda barnabóka. Hún hefur einnig áralanga reynslu af að kenna börnum að skrifa sögur og teikna í Svakalegu sögusmiðjunni, sem á aðsetur í Borgarbókasafninu og Bókasafni Mosfellsbæjar.

Teikningar Blævar má m.a. finna í bókunum Sipp, Sippsippanipp og Sippnippanippsippsúrumsipp, Voðagerði: Lilja, Orð eru ævintýri, Holupotvoríur alls staðar!, Dreddfúlíur, flýið!, Kærókeppninni, Leyndardómum Valþjófsstaðahurðarinnar og öllum Stúfsbókunum.

Verk Blævar hafa hlotið margar tilnefningar s.s. til Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar, Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Hagþenkisverðlauna og Sögur - verðlaunahátíð barnanna fyrir myndlýsingar. Hún fékk FÍT-verðlaun fyrir teikningar í Sipp og hlotið Vorvindaverðlaun IBBY á Íslandi fyrir framlag til barnamenningar.

Skráning verður auglýst síðar.

Nánari upplýsingar veitir:  
Ástrún Friðbjörnsdóttir, sérfræðingur  
astrun.fridbjornsdottir@reykjavik.is  | 411 6230