
Um þennan viðburð
Plokkbingó | Vika 17
Nú byrjar Vika 17!
Mánudaginn 20. apríl hefst skemmtilegt Plokkbingó, sem er hluti af Viku 17 og mun standa til föstudagsins 24. apríl. Bingóspjöld má sækja í afgreiðslu bókasafnsins og þau sem fylla út spjaldið með rusli úr öllum flokkum geta skilað því í sérstakan kassa í afgreiðslu Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal.
Einn heppinn plokkari verður útnefndur „Plokkari Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal“ og hlýtur glaðning í verðlaun!
Við hvetjum þátttakendur til að koma vel undirbúnir með poka fyrir ruslið, hanska og jafnvel plokktangir. Tökum höndum saman og gerum umhverfið hreinna!
Hvað er Vika 17?
Vika 17 er alþjóðlegt átak bókasafna sem vekur athygli á 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Verkefnið hófst í Danmörku árið 2024 og byggir á samstarfi bókasafna, einstaklinga og grasrótarsamtaka um sjálfbærni og samfélagsábyrgð.
Komdu og taktu þátt – saman sköpum við betri framtíð!
Kynntu þér heimsmarkmiðin hér: https://www.heimsmarkmidin.is/
Hvernig tengist Plokkbingó heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna?
Með því að hvetja til umhverfisverndar, samfélagslegrar þátttöku og sjálfbærs lífsstíls.
Markmið 11: Sjálfbær samfélög – Við hreinsum nærumhverfið.
Markmið 12: Ábyrg neysla og framleiðsla – Vitundarvakning um sóun og endurvinnslu.
Markmið 14 & 15: Líf í vatni og á landi – Rusl hreinsað úr náttúrunni verndar lífríki.
Markmið 17: Samstarf um markmiðin – Samfélagið vinnur saman að hreinni framtíð.
Vika 17 á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal
Mánudaginn 20. apríl: Þá fer Plokkbingó af stað
Þriðjudaginn 21. apríl: Fyrirlestur frá Katrínu Jónsdóttur um minimalískan leik
Miðvikudaginn 22. apríl: Barnmenningarhátíðarfagnaður, þemað í ár er samkennd og samfélag.
Föstudaginn 24. apríl: Plokkbingó lýkur
Viðburður á Facebook.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is