
Um þennan viðburð
Kynning á minimalískum leik | Vika 17
Hvernig losar þú þig við 465+ hluti á 30 dögum?
Gætir þú hugsað þér að losa þig við tæplega fimm hundruð hluti af heimilinu á einum mánuði? Katrín gerði það!
Í þessum fyrirlestri deilir hún reynslu sinni af 30 daga minimalískum leik. Reglan var einföld en krefjandi… einn hlutur fór út á fyrsta degi, tveir á öðrum, þrír á þriðja degi eða allt þar til 30 hlutir fóru út á síðasta degi mánaðarins = 465 hlutir fóru út af heimilinu á 30 dögum.
Farið verður yfir hvernig hún losaði sig við hlutina, hvað henni fannst erfiðast við ferlið og hvað kom henni mest á óvart?
Katrín Jónsdóttir er félagssálfræðingur sem hefur gaman af því að kafa ofan í hversdagsleikann. Sem pælari hefur hún verið að skoða viðhorf til hluta og af hverju sumt fólk eigi erfitt með að losa sig við hluti.
Fyrirlesturinn er hluti af Viku 17, sem er alþjóðlegt átak bókasafna sem vekur athygli á 17 heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í vikunni stendur einnig yfir Plokkbingó sem við hvetjum áhugasöm til að taka þátt í.
Öll velkomin!
Vika 17 á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal
Mánudaginn 20. apríl: Þá fer Plokkbingó af stað
Þriðjudaginn 21. apríl: Fyrirlestur frá Katrínu Jónsdóttur um minimalískan leik
Miðvikudaginn 22. apríl: Barnmenningarhátíðarfagnaður, þemað í ár er samkennd og samfélag
Föstudaginn 24. apríl: Plokkbingó lýkur.
Nánari upplýsingar veitir:
Tinna Birna Björnsdóttir | Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is