Tónlist
Tónleikar | Loo Sim Ying
Sunnudagur 31. maí 2026
Borgarbókasafnið fær til sín góðan gest sunnudaginn 31. maí en þá heldur klassíski gítarleikarinn Loo Sim Ying tónleika í Grófinni. Er þetta í annað sinn sem Loo Sim Ying er með tónleika á Borgarbókasafninu, en síðast spilað hann árið 2023 í Grófinni við góðar undirtektir.
Loo Sim Ying hefur lagt stund á gítarnám í heimalandi sínu, Malasíu, og við Trinity College í London og hefur hlotið fjölda viðurkenninga á ferlinum. Hann hefur komið fram bæði sem sólólistamaður og meðlimur í ýmsum hljómsveitum. Að þessu sinni ætlar Loo Sim Ying að fara um víðan völl í tónlistinni og spila lög frá Barrokk tímabilinu, klassíska tímabilinu og 20. öldinni.
