James Tristan Redding situr með gítar og kúrekahatt með bláan himinn í bakgrunni

Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 15:00
Verð
Frítt
Tungumál
Enska
Tónlist

Tónleikar | James Tristan Redding

Laugardagur 25. apríl 2026

James Tristan Redding er bresk-amerískur tónlistarmaður, lagahöfundur og þúsundþjalasmiður sem hefur aðsetur í Nashville, Tennessee. Hann hefur samið meira en þúsund lög og gefið út 12 hljóðversplötur. Hann hefur einnig verið iðinn við að spila á öll möguleg hljóðfæri með hinum ýmsu hljómsveitum og listamönnum. Meðal þeirra sem hafa tekið upp lög eftir James eru Sarah Harralson, Dan Whitehouse, Eli Alger, David Easterling og Emma Gale.

Á þessum tónleikum í Grófinni mun James Tristan Redding leika blöndu af frumsömdu efni og perlum sveitatónlistar sem eru þekktar um gjörvallan heim.

Merki