
Skólastjórinn og Árstíðarverur tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026
Árstíðarverur eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen myndhöfund og Skólastjórinn eftir Ævar Þór Benediktsson og Elínu Elísabetu Einarsdóttur myndhöfund eru þau verk sem tilnefndi eru fyrir Íslands hönd til barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Tilkynnt var um tilnefningar í Norræna húsinu fimmtudaginn 26. mars.
Að þessu sinni eru 13 verk alls tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2026. Á meðal verka eru myndabækur, skáldsögur og teiknimyndasögur. Í tilnefningum ársins er náttúran athugunarefnið, bæða ofan- og neðansjávar, um allar árstíðir og skapa frjóan jarðveg fyrir ímyndunaraflið. Fyrir unga lesandann lætur alvaran á sér kræla þegar þemu eins og söknuður, sjálfsmynd, aðskilnaður og ringulreið mótast af umhverfi hinna fullorðnu. Áskoranirnar sem takast þarf á við hvort sem manni líkar betur eða verr.
Tilkynnt verður um handhafa barna - og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 hinn 20. október. Handhafa verðlaunanna verður afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Helsinki 27. október. Verðlaunin nema 300 þúsundum danskra króna.

Þessi eru tilnefnd til barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs 2026:
Danmörk
Birgitte Krogsbøll og Kamilla Wichmann (myndhöf.): Himlen er en helleflynder
Finnland
Malin Klingenberg og Maria Sann (myndhöf.): Gamlingarna
Tomi Kontio og Elina Warsta (myndhöf.): Koira nimeltään Kissa hyvästelee ystävän
Færeyjar
Sólrún Michelsen og Annika Øyrabø (myndhöf.): Sjókæti (A–OY)
Grænland
Karline Nathansen og Pernille Kreutzmann-Larsen (myndhöf.): Naja arferlu
Ísland
Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen (myndhöf.): Árstíðarverur
Ævar Þór Benediktsson og Elín Elísabet Einarsdóttir (myndhöf.): Skólastjórinn
Noregur
Hilde Hagerup: Du eneste – historien om Gunvor Hofmo og Ruth Maier
Samíska málsvæðið
Ingá Elin Marakatt og Inga-Wiktoria Påve (myndhöf.): Elsa, Jovnna ja Sirkus Max…
Svíþjóð
Johanna Gustafsson-Ahlzén: Det känns så fake
Um barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs voru veitt í fyrsta sinn árið 2013 að ósk norrænu menningarmálaráðherranna, sem höfðu um árabil viljað efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum.
Verðlaunin eru veitt fyrir fagurbókmenntaverk fyrir börn og unglinga sem samið er á einu af norrænu tungumálunum. Verkið getur samanstaðið af bæði texta og myndum og skal uppfylla strangar kröfur um bókmenntalegt og listrænt gildi.