
Um þennan viðburð
Vekjum vorið | Vorið og sumarið í garðinum með Guðríði Helgadóttur
Garðurinn dregur okkur út á vorin og sumrin og ýmis skemmtileg verkefni sem bíða okkar. Fátt er betra fyrir líkamlega og andlega heilsu en að dvelja dagstund í garðinum og sýsla við garðverkin. Gurrý fer yfir helstu verkefni vors og sumars í garðinum og hvernig er heppilegast að bera sig að við þau.
Guðríður Helgadóttir (Gurrý (í garðinum)) er garðyrkjufræðingur og líffræðingur og hefur unnið við garðyrkju með einum eða öðrum hætti allan sinn starfsaldur. Hún hefur kennt við Garðyrkjuskólann á Reykjum í Ölfusi um árabil, gert útvarps- og sjónvarpsþætti um garðyrkju og skrifað um garðyrkju í ýmsa miðla. Hún skrifaði bókina Fjölærar plöntur sem kom út árið 2023 hjá Benedikt bókaútgáfu. Að auki er hún formaður Garðyrkjufélags Íslands.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.

Viðburðurinn er hluti af vorhátíð Fríbúðarinnar í Gerðubergi: Vekjum vorið. Með hátíðinni erum við að fagna hringrásinni og í boði eru viðburðir sem tengjast hinum ýmsu vorverkum. Í Fríbúðinni í Gerðubergi eru allir hlutir ókeypis, þangað er hægt að koma með hluti í góðu ástandi sem nýtast ekki lengur og taka heim með sér það sem vantar.
Viltu vita meira um Fríbúðina?
Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170