Um þennan viðburð

Tími
19:30 - 21:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska, English
Skapandi tækni

make-a-thek | Skapandi fataviðgerðir

Miðvikudagur 18. mars 2026

Skapandi fataviðgerðasmiðja í umsjón Katrínar Káradóttur og Rögnu S. Bjarnadóttur, sem báðar kenna við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands.  

Á staðnum verða ýmis sýnidæmi og fræðsluefni um fataviðgerðir til þess að koma hugmyndavinnunni á flug. Þátttakendur eru hvattir til að mæta með flíkur sem þarf að lagfæra eða breyta og eru hvattir til að taka með eigin verkfæri og fjölbreyttan efnivið en á staðnum verður líka eitthvað af verkfærum, saumavélar, þræðir, garn og textílefni. 

 

Borgarbókasafnið Gerðubergi er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu.  

  Viðburður á facebook

Nánari upplýsingar veitir:  
Ilmur Dögg Gísladóttir, deildarstjóri í Gerðubergi  
ilmur.dogg.gisladottir@reykjavik.is | 411 6170