
Um þennan viðburð
Blóm og bragð | Sáning og ræktun sumarblóma og matjurta
Nú er rétti tíminn til að huga að sáningum fyrir sumarið!
Starfsfólk Grasagarðs Reykjavíkur mætir í bókasafnið og gefur gestum og gangandi góð ráð varðandi sáningu og umhirðu sumarblóma og mat- og kryddjurta.
Réttu handtökin við sáningu og priklun (dreifplöntun) verða kennd, fjallað um áburðargjöf og allt sem hjálpar ykkur að gera sumarið bæði blómlegt og bragðgott!
Ekki er um eiginlegan fyrirlestur að ræða heldur getur fólk spurt og spjallað um það sem á þeim brennur varðandi ræktunina.
Einnig verður fræðsluviðburðir Grasagarðsins kynntir.
Verið hjartanlega velkomin
Nánari upplýsingar:
Björk Þorleifsdóttir
Verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, Grasagarði Reykjavíkur
bjork.thorleifsdottir@reykjavik.is
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | s. 411 6250------