Feðgar hafa það notalegt í barnadeildinni í Árbæ

Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 11:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
-
Börn

Krílastundir í Árbæ

Fimmtudagur 9. október 2025

Krílastundir eru notalegar og óformlegar samverustundir í barnadeildinni. Þar gefst gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið, tilveruna og auðvitað börnin. 
Það er heitt á könnunni fyrir þau fullorðnu og góð skiptiaðstaða er á salerni hússins.

Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum um uppeldi og umönnun ungbarna. Hægt er að glugga í efnið á staðnum og korthafar geta fengið það lánað heim. Svo er auðvitað mikið úrval af barnabókum til að kveikja áhuga krílanna á bókmenntum!

Eigum saman notalega stund með yngstu krílunum við leikspjall og lestur.
 

Viðburður á Facebook 

Allir fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu
Kynnið ykkur barnadeildir Borgarbókasafnsins

Nánari upplýsingar:
Sæunn Þorsteinsdóttir, sérfræðingur barnastarfs
saeunn.thorsteinsdottir@reykjavik.is | 4116250