Um þennan viðburð

Tími
18:00 - 19:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Aldur
16+
Tungumál
Íslenska, English
Fræðsla

Fríbúð | Umbreytum gömlum spilum

Miðvikudagur 19. nóvember 2025

Áttu gömul eða óspilanleg borðspil sem liggja óhreyfð? Í þessari ókeypis smiðju færðu tækifæri til  að endurhugsa, umbreyta og endurnýta borðspil.

Leiðbeinendur smiðjunnar eru Embla Vigfúsdóttir og Steingerður Lóa Gunnarsdóttir

Embla er vöru- og leikjahönnuður sem hefur haldið ýmsa borðspila- og leikjaviðburði fyrir börn og fullorðna.

Steingerður er menntaður leikjahönnuður og með einstaka þekkingu á borðspilum vegna vinnu sinnar til margra ára í Spilavinum.

Við hvetjum þátttakendur til að koma með óspilanleg spil en annars verður fullt af efnivið og borðspilum í boði á staðnum til að breyta í „ný“ og spennandi spil.

Það er takmarkað pláss í boði, svo skráning er nauðsynleg hér fyrir neðan.

Viðburður á facebook

Viltu vita meira um Fríbúðina?
 

Nánari upplýsingar veitir:
Atli Pálsson, sérfræðingur
atli.palsson@reykjavik.is | 411-6170