
Um þennan viðburð
Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Bókasafn
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Fræðsla
Leshringur | Ævisaga þorsksins
Fimmtudagur 16. október 2025
Í október ræðum við Ævisögu þorsksins, fisksins sem breytti heiminum eftir Mark Kurlansky í þýðingu Ólafs Hannibalssonar. Bókin fjallar um þau áhrif sem þorskurinn hefur haft á samfélögin við Atlantshaf síðustu þúsund ár og þar kemur Ísland auðvitað við sögu. En ásamt sagnfræði er í bókinni að finna fjölmargar skemmtilegar frásagnir sem og uppskriftir.
Sjá umfjöllun Morgunblaðsins og á ensku má finna gagnrýni hjá bæði Smithsonian magazine og New York Times.
Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí.
Dagskráin fyrir haustið 2025 er eftirfarandi:
- 18. september: Merking eftir Fríðu Ísberg
- 16. október: Ævisaga þorsksins eftir Mark Kurlansky
- 20. nóvember: Glataðir snillingar eftir William Heinesen
- 18. desember: Paradís eftir Abdulrazak Gurnah
Umsjón og skráning:
Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur
guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204